Efri hæðin

Efri hæðin á NASA var opnuð í desember 2002. Þar er áhersla lögð á þægilega stemmingu og umhverfi. Hæðin er skreytt málverkum eftir Tryggva Árnason og er myndefnið sótt í Þingholtin í Reykjavík.

Efri hæðin er leigð út til hópa og fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum. Hæðin tekur allt að 140 manns og er tilvaling til ýmissa einkasamkvæma, s.s. afmæla, árshátíða o.þ.h.
Algengt er að fyrirtæki leigi hæðina og getum við á NASA sniðið partýið að þörfum hvers og eins, jafnframt sem við getum haft milligöngu um veitingar af ýmsum toga.

NASA gerir einstaklingum og fyrirtækjum tilboð í samkvæmi sem sniðin eru að þörfum hvers og eins. Nánari upplýsingar veitir Inga í síma 511-1313.