Dagskráin
Miðvikudagurinn 16. maí
Þungarokkssveitin Skálmöld er þessa dagana stödd í hljóðveri og tekur þar upp sína aðra breiðskífu sem hlotið hefur nafnið „Börn Loka“. Til að fagna upptökulokum hyggst sveitin halda stórtónleika á Nasa þann 16. maí, sem eins verða að öllum líkindum síðustu tónleikar Skálmaldar í þessu fornfræga húsi. Eins og lög gera ráð fyrir verður sveitin með glænýtt efni í hnakktöskunum sem mun hljóma í bland við gamalt.
Til að samfagna þessum áfanga rísa tveir þungarokksrisar úr dvala, því fyrr um kvöldið stíga á stokk sveitirnar Bootlegs og Skurk. Báðar þessar sveitir voru mjög áberandi í þungarokkssenu Íslands á tíunda áratugnum en hafa haldið sig til hlés að mestu síðustu ár. Kvöldið verður því kjaftfullt af stórviðburðum sem enginn rokkari af þyngra taginu lætur ógrátandi framhjá sér fara.
Rétt er að geta þess að enda þótt 16. maí sé miðvikudagur er hann undanfari upprisudags og opnunartími því eins og um helgi sé að ræða.
Húsið opnar kl. 21.30
Föstudagurinn 18. maí
elements kynnir: Síðasta klúbbakvöld Nasa föstudaginn 18.maí.
Margir af stærstu plötusnúðum heims spiluðu á þessum ógleymanlega stað sem hættir starfsemi í júni. Í tilefni þess mun elements standa fyrir síðasta klúbbakvöldinu sem haldið verður á Nasa.
elements vill hvetja alla sem einhvern tímann skemmtu sér á Nasa til að kveðja staðinn með mikilli gleði og hamingju.
Þeir plötusnúðar sem að fá heiðurinn á að spila á síðasta klúbbakvöldinu eru:
Exos, Ghozt, AJ Caputo, Rix, Danni Bigroom, ATL, og fleiri.
Báðar hæðarnar verða opnar.
Húsið opnar kl. 24.00
Laugardagurinn 19. maí
MUGISON
Mugison ásamt hljómsveit mun henda í smá sumar-gigg á Nasa 19. maí. Strákarnir eru orðnir þyrstir í að spila á tónleikum enda lítið spilað saman síðan fyrir síðustu jól
Sú breyting verður á í þetta sinn að strákarnir ætla að rukka inn, sem þeir hafa nú ekki gert lengi... en auðvitað stilla þeir verðinu í hóf.
Mugison mun hita upp fyrir sjálfan sig með glamri á Minstrumentið.
Húsið opnar kl. 21.30
Laugardagurinn 26. mai
Eurovision partý Páls Óskars!!!!!
GÓÐIR ÍSLENDINGAR.
NASA MUN HÆTTA STARFSEMI SINNI 1. JÚNÍ. SÍÐASTI VIÐBURÐURINN Í ÞESSU HÚSI VERÐUR HIÐ RÓMAÐA "EUROVISION BALL PÁLS ÓSKARS" LAUGARDAGINN 26. MAÍ 2012.
Fram Koma:
KL. 23.00 – 1.30 DJ PÁLL ÓSKAR
KL. 1.40 SELMA BJÖRNS
KL. 1.45 HERA BJÖRK
KL. 1.50 EINAR ÁGÚST & TELMA
KL. 1.55 BLÁR ÓPAL
KL. 2.00 HELGA MÖLLER & PÁLMI GUNNARS
KL. 2.05 STEBBI OG EYVI
KL. 2.10 PÁLL ÓSKAR
KL. 3.00 NASA LOKAR
OG ÞAKKAR FYRIR ALLA GLEÐINA SÍÐUSTU 10 ÁRIN.
ATH. AÐEINS ER LEYFT AÐ HAFA OPIÐ TIL KL. 3 EFTIR MIÐNÆTTI VEGNA HVÍTASUNNUDAGS. MÆTIÐ TÍMANLEGA.
Nú rennur upp síðasta tækifærið til að upplifa Nasa í allri sinni dýrð og gleyma sér á stærsta dansgólfi Reykjavíkur.
Flottasta poppstjarna landsins, Páll Óskar, verður auðvitað gordjöss eins og undanfarin ár á uppáhalds tónleikastaðnum sínum, Nasa við Austurvöll. Hann þeytir skífum af snilld alla nóttina, spilar öll bestu Eurovision lög sögunnar, bæði gömul og ný, og syngur svo öll sín bestu lög með öllu glingrinu, blöðrunum og konfetti bombunum þegar leikar standa sem hæst. Sérstakir gestir Palla þetta kvöld verður rjóminn af flottustu Eurovision stjörnum okkar Íslendinga, Selma Björns, Hera Björk, Einar Ágúst og Telma, Blár Ópal, Helga Möller, Pálmi Gunnarsson, Eyjólfur Kristjánsson og Stefán Hilmarsson. PS. Munið myndavélarnar. Þetta verður í síðasta skiptið sem þú færð tækifæri til að taka myndir þarna inni áður en húsið lokar endanlega, vegna hótels sem áformað er að byggja á þessum reit.
20.ára aldurstakmark
Húsið opnar kl. 23.00
NASA þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að djamma...
